Grunnatriði tilkynninga um brot á höfundarrétti

Ef þú telur að höfundarréttarvarið verk þitt hafi verið birt á YouTube í heimildarleysi geturðu sent inn tilkynningu um brot á höfundarrétti. Aðeins rétthafi eða umboðsmaður sem hefur heimild til að koma fram fyrir hans hönd skyldi senda inn slíkar beiðnir.

Fljótlegasta og auðveldasta leiðin til að tilkynna YouTube um meint höfundarréttarbrot er í gegnum vefeyðublaðið okkar:

Senda inn kvörtun vegna höfundarréttar

Ef þú velur að biðja um að efni verði fjarlægt með því að senda inn tilkynningu um brot skaltu hafa í huga að þú ert að hrinda í framkvæmd lagalegu ferli. Ekki setja fram kröfur á fölskum forsendum. Misnotkun á þessu ferli kann að hafa í för með sér að lokað verði á reikninginn þinn eða aðrar lagalegar afleiðingar.

Ef þú ert fyrirtæki og handhafi einkaréttar á miklu magni efnis hvers höfundarrétti þarf að fylgjast reglulega með á netinu er hugsanlegt að þú viljir sækja um aðgang að efnisgreiningu YouTube eða efnisvottunarþjónustu okkar.

Við tökum einnig við tilkynningum um brot á höfundarrétti án eyðublaðs, sem sendar eru með tölvupósti, faxi og bréfpósti.