YouTube fyrir þróunaraðila
Felldu YouTube inn á hvaða skjá sem er, hvenær sem er.
Viltu gera YouTube aðgengilegt fyrir notendur þína? Forritaskil og tól YouTube gera þér kleift að fella inn vídeó og nýta virkni YouTube á vefsvæðinu þínu, forriti eða tæki.
Yfirlit
Innfelling YouTube
Gagnaforritaskilin gera þér kleift að fella virkni YouTube inn í eigið forrit eða vefsvæði. Þú getur leitað, hlaðið upp vídeóum, búið til spilunarlista og fleira.
YouTube spilarinn sérsniðinn
Forritaskil spilara færa þér stjórntæki til að stýra spilun á YouTube vídeóum á vefsvæðinu þínu eða farsímaforritinu. Veldu grunnstillingar, notaðu spilaraviðmótið eða smíðaðu jafnvel eigin stýringar fyrir spilarann.
Haltu utan um og hafðu umsjón með vídeóunum sem notendur þínir senda inn
YouTube Direct Lite gerir þér kleift að falast á einfaldan hátt eftir notendaunnu efni frá gestum síðunnar þinnar, hafa umsjón með innsendingum og birta þær á síðunni.
Frekari upplýsingar
Felldu vídeó inn í forritin þín
Auðvelt er að birta YouTube vídeó í vef- eða farsímaforritinu þínu og sérsníða spilarann – til þess má nota innfellt iframe, færibreytur spilarans eða iframe ásamt spilaraforritaskilum Android.
Fáðu vídeótölfræði
Fáðu tölfræðiupplýsingar um áhorf, vinsældir og lýðfræði varðandi YouTube vídeóin þín og rásir með forritaskilum greiningar.
Hladdu upp vídeóum úr forritinu þínu eða vefsvæði
Notaðu gagnaforritaskil YouTube til að hlaða vídeóum upp beint. Við bjóðum upp á biðlarakóðasöfn fyrir fjölda forritunarmála til að auðvelda þér verkið.





